Gunnar Magnús, Erlingur Árni og Sigurður Egill

sunnudagur, maí 21, 2006

Þroskaferlið

Við höfum ekki verið nógu dugleg að segja frá litla kútnum okkar í máli. Hann dafnar ofsalega vel og maður sér breytingar á hverjum degi. Við höldum að sjálfsögðu að barnið sé snillingur. Fyrsta brosið kom þriggja vikna. Þegar hann var tveggja mánaða var hann byrjaður að tosa í handföngin/kringlurnar á ömmustólnum sínum. Tveggja og hálfs mánaða hló hann hátt og mikið í fyrsta skiptið. Það var þegar við vorum lent á Flórída, kappinn hefur verið svona feginn. Núna er aðalsportið að leika við táslurnar sínar og tosa í þær, sérstaklega þegar hann er berfættur. Í þessari leikfimi sinni, rúllar hann oft á hliðina. Hann heldur líka yfirleitt á dótinu sínu með báðum höndum og stingur því upp í sig. Rosalega bragðgott.... Við fórum til barnalæknis í síðustu viku og þá var Gunnar Magnús orðinn 6465 grömm.

Þar hafið þið það :)

1 Comments:

  • At 10:26 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    6 kíló ... samt svo grannur og spengilegur ;)
    Svo er ég viss um að firsta orðið fari að koma, "eiturfínt" skal það verða !!
    Kv. Hrafnhildur

     

Skrifa ummæli

<< Home