Gunnar Magnús, Erlingur Árni og Sigurður Egill

miðvikudagur, mars 01, 2006

Barnalæknirinn

Við fórum til barnalæknis í gær. Gunnar Magnús kom alveg ofsalega vel út. Hann er orðinn 4.460 grömm og 53.7 cm. Þegar hann lá á vigtinni, bjó hann til þessa líka svakalega flottu pissuparabólu og pissaði á vigtina og út á gólf. Mamman rétt náði að stökkva frá bununni. Fyrr um morguninn hafði ég verið inni á baði þegar við vorum að flýta okkur að koma okkur út og Gunni var að skipta á litla manninum. Þá heyri ég kallað til mín skelfingarröddu: ,,Mæja! Hann er búinn að pissa framan í sig og kúka á mig!!!".

5 Comments:

  • At 9:30 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Mikið svakalega er hann Gunnar Magnús bráðþroska, strax byrjaður að tala. Og það íslensku!
    Kv. Grímur.

     
  • At 3:16 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    LOL þessi síðasta settning er .... hahahah ;)

     
  • At 10:09 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ég kemst hreinlega ekki yfir það hvað litli guttinn er mannalegur og þó rétt að verða 3ja vikna gamall.
    Ég skoða myndirnar af honum á hverjum degi. Er búin að "monta mig" við alla, þ.e. sýna hvað Mæja vinkona á flottan strák ;o)
    Gangi ykkur áfram svona vel!
    kv. HDW og MB

     
  • At 5:26 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Alltaf gaman ad heyra hvad thid fjolskyldan erud ad bralla .... prinsinn bara farinn ad pissa og kuka ut um allt, list vel a hann!!!!
    BS

     
  • At 9:05 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hvernig verða unglingsárin ef pilturinn er strax farinn að vera með skítkast við pabba sinn?

    Da-Mixa.

     

Skrifa ummæli

<< Home