Gunnar Magnús, Erlingur Árni og Sigurður Egill

miðvikudagur, ágúst 26, 2009

EÁ Þriggja vikna

 

 
Posted by Picasa

fimmtudagur, ágúst 20, 2009

Heimsókn hjúkrunarfræðings

Hjúkkan af heilsugæslustöðinni var að heimsækja okkur Erling Árna áðan. Pilturinn er orðinn 3900 grömm, nú þegar hann er 26 daga gamall. Hann hefur því bætt á sig 350 grömmum á 9 dögum, sem Mömmunni finnst ótrúlega flott hjá stráknum sínum :) Næsta mæling verður svo ekki fyrr en hann verður 6 vikna.

mánudagur, ágúst 17, 2009

Erlingur Árni skírður

laugardagur, ágúst 15, 2009

Nóg að gera


Það er nóg að gera hjá uppteknum stóra bróður... tala í símann... passa þann litla...
Posted by Picasa

Bræður sofa...


...í sömu stellingunni.
Posted by Picasa

Góðir vinir


Gunnar Magnús og Elvar vinur hans á leikskólanum. Þegar við komum að sækja hann, þá voru þeir í óðaönn að baka kökur. Sandi var mokað ofan í fötu og svo hvolfdu þeir henni, mjög samtaka. Síðan var talið í kór upp að ellefu og þá var kakan tilbúin!
Posted by Picasa

Fyrsti göngutúrinn

Þann 11. ágúst fór Dúlli út í vagninn í fyrsta skiptið. Leiðin lá á Öldukot að sækja stóra bróðurinn, sem var að vonum kátur. Hér getur líka að líta hið fræga Leiftur McQueen hlaupahjól sem frumburðurinn vann sér inn þegar hann hætti með duddu í vor :)

Allir að máta Dúlla


Íris vinkona kom og mátaði mig.


Hjá Stínu frænku.


Víðir og Þórdís prufukeyrðu mig. Þeirra ungi er væntanlegur í lok september :)


Þórdís var voða hrifin af mér :)
Posted by Picasa

miðvikudagur, ágúst 12, 2009

Fleiri myndir...

Ég setti nokkrar myndir frá fyrstu 10 dögunum á Facebook, smellið hér.

þriðjudagur, ágúst 11, 2009

17 daga gamall


Dúlli litli er nú orðinn 17 daga gamall. Áðan kom hjúkrunarfræðingur til okkar af heilsugæslunni til að vigta gullklumpinn og hann var 3550 grömm, sem er aldeilis flottur árangur, þar sem hann var 2940 grömm í 5 daga skoðuninni. Drengurinn er líka afskaplega duglegur að drekka :) Svo kemur hjúkrunarfræðingurinn aftur á föstudaginn eftir viku.

Stóri bróðir er byrjaður á leikskólanum og unir sér afskaplega vel. Hann var greinilega kominn með nóg af því að vera í fríi, þar sem allir dagar voru mismunandi. Við höfðum rætt það lauslega við hann að bráðum myndi hann fara yfir á stóru deildina, þar sem krakkarnir leggja sig ekki og enginn er með duddu. Drengurinn er búinn að þroskast svo mikið síðastliðinn mánuð að það er ótrúlegt. Honum hefur greinilega fundist það einnig sjálfum, því hann ætlaði bara strunsa framhjá sinni deild og fara beint upp á stóru deildina þegar pabbi hans fór með hann á leikskólann í gær. Hann var því svolítið vonsvikinn að þurfa að fara til "litlu" barnanna en einn kennarinn sagðist skyldu fara með hann upp síðar um daginn í heimsókn.
Posted by Picasa

mánudagur, ágúst 03, 2009

Dúlli litli 9 daga

Jæja, nú er Dúlli litli orðinn 9 daga gamall. Litli drengurinn er algjört ljós og drekkur og sefur, alveg eins og hann á að gera :) Ljósmóðirin sem hefur komið og heimsótt okkur í heimaþjónustunni útkskrifaði okkur með glæsibrag í dag, var mjög ánægð með hann. Sagði að hann væri kominn með svokallaðan mjólkurmaga :) Á næstunni mun svo koma til okkar hjúkrunarfræðingur og vigta litla prinsinn.

Stóri prinsinn, Gunnar Magnús, er algjör drauma-stóri-bróðir. Hann er svo ljúfur og góður við bróður sinn og vill oft hafa hann hjá sér. Þegar Dúlli grætur, spyr hann stundum hvort hann gráti því hann sé ekki hjá honum. Ofurnæma Mamman tárast alveg við að skrifa þetta. Þvílíkt ríkidæmi!

laugardagur, ágúst 01, 2009

Dúlli litli 6 daga gamall







Posted by Picasa

Fyrsta fjölskyldumyndin af okkur fjórum :)

Posted by Picasa

Bræðurnir


Gunnar Magnús heldur á litla bróður sínum í fyrsta skiptið :)
Posted by Picasa